Fer vel frauline
03. júlí 2008 klukkan 18:58
Gef þessa síðu upp á bátinn sökum lélegs tölvuáhuga. Ble ble
Úff
04. júní 2008 klukkan 08:58
Vaknaði í morgun við vekjaraklukkuna í símanum. Þá kl:7. Til þess að fara með stelpuna mína í leikskólann. En ég ákvað að það væri nú í lagi að aðeins að loka augunum, bara í smá stund
. Jú það var í lagi þangað til að eitthvað sagði mér að nú væri ég að verða of sein. Klukkan var þá 7:42. SJITT! Ég hefði átt að sofa yfir mig
. En ég átti eftir að gera stelpuna klára skipta, klæða og gefa henni meðalið.(hún fékk eyrnabólgu í bæði, var sett á eyrnameðal, sem btw ég vissi ekki að væri enþá til. Æ þetta með ávaxtabragðinu.) Hún er á báðum áttum með að finnast það gott. En já ég var að skipta á henni og klæða svo varða meðalið og út. Ætli sú stutta hafi ekki bara tekið uppá að spýta meðalinu út úr sér. Úff afhverju núna? Afhverju ekki í gær eða hinn? Nei núna. Hún hefur fundið á sér að mamma hefði vaknað of seint og er að flýta sér. Hún var ekki sátt með þessi hröðu handtök og pirring. En ég er þannig að ég vil vera á réttum tíma, helst aðeins fyrr. Er svona með allt.
Jæja gott fólk, er farin og ætla að taka til í hreiðrinu mínu og gera kósý
Jæja gott fólk, er farin og ætla að taka til í hreiðrinu mínu og gera kósý







